plast2.jpg
Nýung - Drykkjarmál
Föstudagur, 02. október 2009 17:45

 

 
nyjung!

 

 Við erum ákaflega stolt af því að kynna nú í fyrsta sinn einnota drykkjarmál sem framleidd eru hér á landi en fram til þessa hafa öll einnota drykkjarmál verið innflutt. Við bjóðum upp á tvær tegundir, annarsvegar þynnri mál sem henta vel undir kalda drykki og hinsvegar þykkari mál sem henta vel undir rjúkandi heita drykki. Málin er hægt að fá hvort sem er úr hvítu eða glæru plasti. Nýju málin eru hönnuð af starfsfólki Plastiðjunnar og væntum við þess að Íslendingar taki nýjasta fjölskyldumeðlimi okkar vel!

Skoða nýju drykkjarmálin nánar

 

 

 

 
Nýjar prentvélar koma skemmtilega á óvart!
Miðvikudagur, 08. júlí 2009 13:46
 nyng_apret 

Okkur til mikillar ánægju hefur okkur tekist, með góðri hjálp samstarfsaðila, að ná betri prentgæðum við skreytingar á dósum heldur en okkur grunaði að hægt væri að ná með þessari tækni. Þessi nýja skreytingatækni bíður uppá geysilega hagkvæman möguleika við skreytingu með allt að 6 lita prentun.

Sendu okkur fyrirspurn
 
Innleiðing nýrrar framleiðslutækni
Miðvikudagur, 24. júní 2009 10:11

Þessa dagana stendur yfir þjálfun starfsfólks Plastiðjunnar  á  nýjan prentara sem lokið var við að setja upp í byrjun vikunnar . Prentarinn  er hluti af nýrri vélarlínu sem Plastiðjan festi kaup á fyrir skemmstu og ætlaður til merkingar á skyrdósum, jógúrtdósum og drykkjarmálum svo fátt eitt sé nefnt.   Að þessu sinni er það Mr. Franz Sadleder sérfræðingur frá Greiner packaging sem staddur er hér á landi sem sér um að þjálfa og kenna starfsfólki Plastiðjunnar á nýju vélina. Vert er að minnast á að Greiner packaging sem jafnframt er stærsti umbúðarframleiðandi í Evrópu hefur í  tvígang, það sem af er sumars sent til okkar sérfræðinga til þjálfunar og kennslu á vélar fyrir starfsfólk Plastiðjunnar.

 
Nýjar framleiðsluaðferðir
Mánudagur, 15. júní 2009 04:22

Nýverið festi Plastiðjan kaup á nýrri plasthitamótunarvél. Áætlað er að vélin sem kom hingað til lands í byrjun maí geti afkastað allt að 170 milljón eintaka á ári. Vél þessi er ætluð til framleiðslu á drykkjarmálum, skyr og jógúrt dósum, bökkum og öðrum tegundum umbúða ætluð fyrir matvæli. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að setja vélinna upp og kynna þessa frábæru nýjung fyrir væntanlega viðskiptavini. 

 
Húsnæði plastiðjunar tekur stakkaskiptum!
Laugardagur, 13. júní 2009 08:33

Undanfarnar vikur og mánuði hefur húsnæði plastiðjunnar tekið stakkaskiptum Breytingar þessar eru liður í að innleiða ISO 9001 gæðavottun og endurskipulagning verksmiðjunar vegna tilkomu nýrra véla. Unnið hefur verið hörðum höndum að endurskipulagningu og hafa starfsmenn tekið virkan þátt í að endurbyggja verksmiðjuhúsnæðið að innan.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL