plast1.jpg
Innleiðing nýrrar framleiðslutækni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Alex Ægisson   
Miðvikudagur, 24. júní 2009 10:11

Þessa dagana stendur yfir þjálfun starfsfólks Plastiðjunnar  á  nýjan prentara sem lokið var við að setja upp í byrjun vikunnar . Prentarinn  er hluti af nýrri vélarlínu sem Plastiðjan festi kaup á fyrir skemmstu og ætlaður til merkingar á skyrdósum, jógúrtdósum og drykkjarmálum svo fátt eitt sé nefnt.   Að þessu sinni er það Mr. Franz Sadleder sérfræðingur frá Greiner packaging sem staddur er hér á landi sem sér um að þjálfa og kenna starfsfólki Plastiðjunnar á nýju vélina. Vert er að minnast á að Greiner packaging sem jafnframt er stærsti umbúðarframleiðandi í Evrópu hefur í  tvígang, það sem af er sumars sent til okkar sérfræðinga til þjálfunar og kennslu á vélar fyrir starfsfólk Plastiðjunnar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. júlí 2009 15:26