plast2.jpg
Nýjar framleiðsluaðferðir
Mánudagur, 15. júní 2009 04:22

Nýverið festi Plastiðjan kaup á nýrri plasthitamótunarvél. Áætlað er að vélin sem kom hingað til lands í byrjun maí geti afkastað allt að 170 milljón eintaka á ári. Vél þessi er ætluð til framleiðslu á drykkjarmálum, skyr og jógúrt dósum, bökkum og öðrum tegundum umbúða ætluð fyrir matvæli. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að setja vélinna upp og kynna þessa frábæru nýjung fyrir væntanlega viðskiptavini.