plast2.jpg
Nýung - Drykkjarmál
Föstudagur, 02. október 2009 17:45

 

 
nyjung!

 

 Við erum ákaflega stolt af því að kynna nú í fyrsta sinn einnota drykkjarmál sem framleidd eru hér á landi en fram til þessa hafa öll einnota drykkjarmál verið innflutt. Við bjóðum upp á tvær tegundir, annarsvegar þynnri mál sem henta vel undir kalda drykki og hinsvegar þykkari mál sem henta vel undir rjúkandi heita drykki. Málin er hægt að fá hvort sem er úr hvítu eða glæru plasti. Nýju málin eru hönnuð af starfsfólki Plastiðjunnar og væntum við þess að Íslendingar taki nýjasta fjölskyldumeðlimi okkar vel!

Skoða nýju drykkjarmálin nánar