Hér ber að líta útlistun á flokkum plastefna. Númeramerking plastefna gefur til kynna um hvaða plastefni ræðir og einnig í hvað hver flokkur fyrir sig er nýttur til í endurvinnslu.

| Þessi flokkur plastefna samanstendur af plasttegundinni Polythylene terephthalate. Þessi tegund plastefna er mikið notuð til framleiðslu á gos og vatnsflöskum, sósu og olíubrúsum, matvælaíláta og brúsa. Polythylene terephthalate má nýta til endurvinnslu og búa til flísefni, trefjar, plastpoka, mottur, aðrar tegundir íláta og umbúða og plast húsbúnað. Plastiðjan notast við PET til framleiðslu á flöskum.
| 
| Þessi flokkur samanstendur af high density polyethylene plasts. HDPE er mikið notað í framleiðslu á umbúðum undir ýmsar tegundir efnavöruumbúða eins og þvottaefni og hreingerningarbrúsa og sjampó brúsa. Polythylene er einnig notað til framleiðslu á matvælaumbúðum eins og bökkum, dósum, ílátum, drykkjarmálum, töppum og dollum. high density polyethylene. HDPE er endurnýtt í þvottaefnisbrúsa, olíubrúsa, penna, ílát, gólfefni, rör, húsbúnað og fleira. Plastiðjan notar HDE plastefni við framleiðslu á töppum.
| 
| Þessi flokkur plastefna samanstendur af polyvinyl Chlorid eða PVC plasts. Þessi flokkur plastefna er nýttur til framleiðslu á fatnað, plast utan um rafmagnsvíra og ýmsar tegundar lagna svo fátt eitt sé nefnt. PVC plast er endurnýtt í veggklæðningar.
| 
| Low density Polyethylene eða LDPE er tegund plasts sem notað er til framleiðslu á mjúkum plastflöskum, plastpokum, plast töskum, fatnað, teppi og húsgögn. LPETE er endurunnið í ruslatunnur, plast fötur, veggklæðningar, gólfefni svo fátt eitt sé nefnt.
| 
| Polypropylene eða PP er notað til framleiðslu á flöskum, brúsum, töppum, sogrörum, lyfjaglösum auk annarra. PP er endurunnið í sóða, bursta, hulstur fyrir rafhlöður, plastbakka, tunnur og þess háttar. Hátt bræðslumark er eiginleiki PP plasts og það því oft endurunnið í hitaþolnar vörur. Plastiðjan notar PP í jógúrtdósir, skrdósir, og drykkjarmál.
| 
| Polystyrene eða PS er nýtt til framleiðslu á einnota diskum og bollum, matvælapakkningum, bökkum, lyfjaumbúðir, og þess háttar. Polystyrene er endurunnið í einangrunarplast, innstungur, reglustrikum, frauðplast svo fátt eitt sé nefnt.
| 
| Þessi flokkur inniheldur blönduð plastefni og allar aðrar plasttegundir en þær sem listaðar eru upp hér að ofan.
|
|