Plast er tegund efnis sem verður til af manna völdum og fyrirfinnst ekki í náttúrunni en er þó búið til úr náttúrulegum efnum. Plast er samsett úr löngum sameindum sem nefnast fjölliður og myndast úr raðtengdum atómum.
Yfirleitt eru það raðtengd kolefnisatóm en í sumum gerðum fjölliðukeðja t.d. í næloni er einnig að finna súrefnis og nituratóm. Fjölliður verða til við hreinsun og vinnslu jarðolíu eða þegar hvarfgjarnar gassasameindir blandast við hvataefni og hvarfast í langar sameindakeðjur. Fjölliður geta verið einfaldar, línulegar, aðgreindar eða samsettar keðjur. Slík mismunandi form fjölliðukeðjanna hafa áhrif á eiginleika plastefnisins en myndun þeirra má stjórna með aðstæðum við plastframleiðsluna.
Eiginleikar plastsins ráðast því af lengd, bindingu og þeirra grunneininga sem bundnar eru við keðjurnar. Eiginleikar plast fara eftir því hvaða grunneiningar eru í því t.d. er Klóreten grunneining í PVC- plast fjölliðum.
|