Sprautusteypa hefur tíðkast hjá fyrirtækinu um nokkurt skeið og á Plastiðjan eina slíka vél. Sprautusteypa hentar einkar vel til fjöldaframleiðslu því hægt er að framleiða hluti í nákvæmlega sömu stærð og að jöfnum gæðum. Í sprautusteypu er aðallega notast við hitadeigt plast en þó er einnig hægt að nota hitafast og gúmmíteygjanlegt plast þó hitadeigt efni sé algengasta framleiðsluefnið. Framleiðsluferill Sprautusteypu fer þannig fram að fyrst er plastið matað í trekt sem flytur plastið ofaní hólk þar sem það er látið bráðna. Algengasta hitastigið er 200 – 300°C til þess að bræða plastið en er þó mismunandi eftir plast tegundum. Því næst er notast við skrúfu til þess að þrýsta bráðnu plastinu inn í mótið. Þegar plastið er komið inn í mótið hefst kælingartími efnisins við það frýs plastið og harðnar í lögun mótsins. Að lokum er mótið opnað og hlutnum er kastað út með staut eða þrýstilofti. Því næst lokast mótið og er tilbúið fyrir nýja mótun.
|