plast1.jpg
Hitamótun

Thermoforming eða hitamótun er ný framleiðsluaðferð hjá Plastiðjunni og er áætluð framleiðslugeta um 170 milljónir eintaka á ári.

 Hitamótun er framleiðsluaðferð þar sem plast filma er hituð upp að mýkingarstigi eða því marki sem hægt er að forma  efnið inn í mót. Filman er sett yfir mót þar sem hún festist við kanta þess á meðan loftþrýstingur eða undirþrýstingur ýtir plastfilmunni að mótinu.

Við þrýstinginn leggst plastfilman að mótinu og tekur á sig lögun mótsins. hitamótun er lang algengasta framleiðsluaðferð plasts og er hún mikið notuð til þess að framleiða dósir og bakka undir jógúrt, skyr og þess háttar.