|
Föstudagur, 18. júní 2010 15:07 |
|
Nú getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á fleiri möguleika í umbúðum þökk sé nýju EBM vélunum okkar. Þær framleiða brúsa, krukkur og flöskur úr á 5. tug nýrra móta í ýmsum stærðum, litum og gerðum. Vélarnar sem verið er að tilkeyra þessa dagana opna fyrir okkur nýjar víddir í vöruframboði. Það er því sannkallað gleðiefni fyrir islenska framleiðendur að geta nú valið úr breiðara úrvali innlendra umbúða frá okkur.
|
|
Miðvikudagur, 19. maí 2010 14:29 |
|
Þeir kalla ekki allt ömmu sína strákarnir í Plastiðjunni en meirihluti starfsmanna hefur skráð sig til leiks í hjólað í vinnunna og etja nú kappi við fjölmörg önnur íslensk fyrirtæki. Þeir félagar keppast því um að nota annan ferðamáta en bifreið og má með sanni segja að átakið hafi gengið fram úr björtustu vonum. Þeir kunna þó fleira fyrir sér en að hjóla á reiðhjóli því í bland hafa þeir skellt sér á línuskauta, gengið til vinnu og jafnvel gengið á fjöll.
|
|
Mjólka - Til hamingju með nýju umbúðirnar! |
|
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 15:35 |
 Nýverið voru gerðir samningar með Plastiðjunni og Mjólku um framleiðslu á dósum undir 5 tegundir af Jó jógúrt. Nú hefur fyrsta afhending farið fram og óskum við Mjólku góðs gengis með þessar nýju Íslensku umbúðir. |
|
|
|
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 14:42 |
| Það voru margar skrautlegar og skemmtilegar verur sem kíktu til okkar á Öskudaginn og sungu sitt fegursta til að fá sælgæti að launum. Við notuðum tækifærið og smelltum mynd þegar tveir litlir og skrautlegir trúðar komu við í vinnunni hjá Afa. | |
|
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010 11:26 |
 | Við erum sífellt að bæta við okkur og getum við nú boðið viðskiptavinum okkar upp á sérmerkta PCO28mm flöskutappa með ígröfnu letri eða fyrirtækjamerki. Tappana er hægt að fá í hvaða lit sem er og hvaða merkingu sem er. Skoða flöskutappa nánar |
|
|
Framleiðsla og Prentun umbúða fyrir Mjólkursamsöluna |
|
Mánudagur, 15. febrúar 2010 16:56 |
Nýverið tókust samningar á milli Plastiðjunnar og Mjólkursamsölunnar um framleiðslu og prentun á dósum fyrir mjólkurafurðir. Plastiðjan og Mjólkursamsalan eiga yfir 30 ára samstarf að baki og ríkir mikil ánægja hér á bæ með að tekist hafi að auka það samstarf með nýjum vörulínum. 
|
|
Eina náttúrlega bragðbætta vatnið sem selt verður á Íslandi |
|
Þriðjudagur, 09. febrúar 2010 16:21 |
| Samningar hafa tekist milli Plastiðjunnar og Nordic Water um framleiðslu á vatnsflösku fyrir Latabæjar, Go water. Markmið Nordic Water er að hafa allar umbúðir sem umhverfisvænastar og framleiðum við því flöskuna úr 100% endurnýtanlegum plastefnum. Latarbæjarvatnið er bragðbætt með 100% náttúrulegu efni og inniheldur engin aukaefni á borð við sykur, E-efni eða rotvarnarefni. Vatnið sem er væntanlegt á markað verður bæði dreyft innanlands sem og erlendis. |
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |